Starfsferill
2019 - Verkefnastjóri í Kennslumiðstöð Háskóla Íslands, kennsluráðgjafi vegna Canvas, FeedbackFruits og annarra tengdra kerfa.
- Verkefni óþrjótandi, m.a. þátttaka í innleiðingu námsumsjónarkerfisins Canvas, örnámskeið fyrir kennara HÍ, Canvas leiðbeiningar og margt margt fleira.
2017 - 2019 Verkefnastjóri v/Moodle hjá Háskóla Íslands
2015 Sjálfstætt starfandi verktaki, vefsmíði, grafísk vinnsla/hönnun og myndlist.
- Frá september 2017 Verkefnastjóri hjá Kennslumiðstöð Háskóla Ísland (60%). 100% staða frá 1.8.2019.
- Umsjón með námsumsjónarkerfinu Moodle.
- Aðstoð, ráðgjöf og vefmálstofur fyrir kennara HÍ vegna Moodle og auk aðstoðar vegna kennsluvefs Uglu.
- Uppsetning á leiðbeiningavef og gerð leiðbeininga um Moodle: moodlehjalp.hi.is og leiðbeiningar vegna kennsluvefs Uglu: https://kennslumidstod.hi.is/kennarar/namsumsjonarkerfi/kennsluvefur-uglu/
- Janúar 2018 Spurningakönnun lögð fyrir nemendur og kennara HÍ um notkun námsumsjónarkerfis og viðhorf notenda (Moodle). Um framkvæmd og niðurstöður: https://kennslumidstod.hi.is/moodle-konnun/
- 2018-19 Tók þátt í faghópi HÍ um námsumsjónarkerfi vegna væntanlegrar innleiðingar á námsumsjónarkerfi fyrir skólann.
- Frá júlí 2016 Verktaki hjá Reykjavíkurborg, uppsetning á Moodle námsumsjónarkerfi, gerð leiðbeininga vegna Moodle (sjá moodlehjalp.reykjavik.is) og aðstoð við notendur.
- Frá janúar 2015 Sjálfstætt starfandi, aðstoð vegna Moodle (HÍ kennarar), vefsmíði fyrir einstaklinga og fyrirtæki, uppsetning á bók fyrir prentun, teiknað kort v/ferðahandbókar (sjá hér: bardastrandarhreppur.net), auk þess sem ég hef sinnt eigin myndlist (kristbjorg.net og á fb).
Uppsettir vefir eftir mig: - Hef einnig veitt SÍBS og Securitas ráðgjöf vegna Moodle.
2008 - des. 2014 Verkefnastjóri í Kennslumiðstöð Háskóla Íslands
Helstu verkefni:
- Umsjón með námsumsjónarkerfinu Moodle.
- Kennari á námskeiðum og vinnustofum fyrir kennara Háskóla Íslands (upplýsingatækni/kerfi).
- Veita kennurum aðstoð og ráðgjöf vegna Moodle og kennsluvefs Uglu sem tilheyrir innra vefkerfi HÍ.
- Vefsmíði og hönnun.
- Gerð leiðbeininga og uppsetning þeirra á vef (vídeó/texti). Moodle-leiðbeiningar fyrir nemendur og leiðbeiningar um Uglu á vef Kennslumiðstöðvar HÍ.
- Kynningar og ráðgjöf á Uglu og Moodle í Háskólanum á Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands og á Uglu í Háskólanum á Akureyri.
- Aðstoð og ráðgjöf vegna Moodle hjá Endurmentun HÍ, Mannvirkjastofnun og Isavia.
- Í starfshópum vegna þróunar á Uglu og Moodle.
- Umsjón með Moodle-degi HÍ, lítilli árlegri ráðstefnu um kerfið.
2007 - 2008 Ritstjóri kennsluskrár Háskóla Íslands
Endurskipulagning á kennsluskrá HÍ og verkstjórn. Í þessu fólst m.a. að stýra verkinu, skipta því upp á áfanga, funda reglulega með starfsfólki deilda sem vinnur við innsetningu efnis, samantekt á efni og skrif á almennum köflum.
2003 - 2006 Verkefnastjóri í Kennslumiðstöð Háskóla Íslands
- Hönnun og smíði á vef Kennslumiðstöðvar.
- Umsjón með vefnum.
- Skipulagning á námskeiðum fyrir kennara og starfsfólk HÍ.
- Leiðbeinandi á námskeiðum fyrir kennara og starfsfólk HÍ (Word, PowerPoint, Excel, FrontPage, Producer, Ugla – innra vefkerfi HÍ).
- Tækniaðstoð fyrir kennara HÍ (upplýsingatækni ýmis konar).
- Gerð leiðbeininga á vef.
- Umsjón með fjarprófum innanlands.
- Skönnun, úrvinnsla og útreikningur fjölvalsprófa hjá HÍ og HR.
- Myndbandsupptökur á fjarnámskeiðum, klipping og uppsetning á net
- Skráning ýmis konar og utanumhald t.d. vegna útseldrar vinnu.
2002 - 2003 Umsjónarkennari í 5. bekk Vesturbæjarskóla
Kennsla í grunngreinum ásamt náttúrufræði, heimilisfræði og upplýsingatækni. Starfið krafðist mikils samstarfs við aðra kennara þar sem verkefni voru sett upp fyrir nokkrar bekkjadeildir.
2000 - 2002 Myndmenntakennari í 4.-8. bekk Grunnskólans á Ísafirði
Starfið krafðist m.a. skipulagningar á verkefnum allra árganga,
- Myndmennta- og listasögukennsla í 4.-8. bekk.
- Gerð kennsluefnis.
- Uppsetning sýninga á verkum nemenda.
- Heimanám 6-7 ára barna.
- Innkaup vegna myndlistarkennslu.
- Ég smíðaði einnig vef þar sem ég hélt úti upplýsingum um kennsluna og verkefni sem lögð voru fyrir. Á vefnum mátti m.a. finna kennsluáætlanir allra árganga og fjölda mynda af verkum nemenda og nemendum við vinnu. Ég frétti af kennurum víða um landið sem nýttu sér vefinn sem hugmyndabrunn fyrir verkefni í myndlist.
1998 - 2000 Innheimtustörf og skilagreinar, Lögmenn, Suðurlandsbr. 6. Andri Árnason hrl.
- Samningar við skuldara.
- Umsjón með: Innheimtbréfum, greiðsluáskorunum og aðfarabeiðnum.
- Skilagreinar til kröfuhafa m.a. Landssíma Íslands
Annað
- 2001 - 2002 Kennari á myndlistarnámskeiðum fyrir börn í Edinborgarhúsi, lista- og menningarmiðstöð, Ísafirði.
- 2001 Kennari í „Skapandi starf á yngri stigum“, námskeiði fyrir umsjónakennara sem kenna myndlist í smærri skólum (1 dags námsk.), á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.
- 1997 - 1999 Kennari á myndlistarnámskeiðum fyrir börn og fullorðna á vegum Mímis – Tómstundaskóla, m.a. á námskeiðinu „Virkjun hægra heilahvels með teikningu“ fyrir fullorðna.
Menntun
Meistaranám í myndlist, kennsluréttindi, ýmis námskeið og sjálfsnám
- 2006 - 2007 Utrecht Graduate School of Visual Art and Design, MaHKU, Master of Arts (Distinction).
- 1996 - 1997 Háskóli Íslands, kennsluréttindanám.
- 1991 - 1995 Myndlista- og handíðaskóli Íslands, útskrifuð úr málunardeild.
- 1994 Kungl. Konsthögskolan (Royal Institute of Art) Stokkhólmi (Nordplus).
- 1986 - 1990 Menntaskólinn við Hamrahlíð, útskrifuð af félagsfræðibraut.
Námskeið
Vefhönnun, margmiðlun og kennsla
- 2019 er í námskeiðinu Learning Technologies Foundations and Applications - University of Illinois, Coursera.org
- 2019 Instructional Design Foundations and Applications - University of Illinois, Coursera.org
- 2014 Moodle námskeið haldið hjá Learn to Moodle í London.
- 2012 Learn to Program: The Fundamentals - University of Toronto, Coursera.org
Önnur námskeið sem ég hef sótt lúta flest að vefsmíði, hönnun, margmiðlun og ýmsu tengdu upplýsingatækni, m.a. hjá Verkfræðiþjónustunni, Endurmenntun HÍ, Coursera, lynda.com og hjá MoodleBites um gerð sniðmáta fyrir Moodle.
Forrit og kerfi
Moodle, Camtasia, Photoshop, WordPress og Google
auk ofangreindra, sem ég nota hvað mest, hef ég notað Dreamweaver, Joomla, Final Cut Pro, Publisher, InDesign, Microsoft Office og ýmis fleiri. Ég er vön að læra sjálfstætt og afla mér upplýsinga um þau forrit sem ég þarf að nota hveru sinni og að finna sjálf viðeigandi eða áhugaverð forrit til að vinna með.
Áhugamál
Myndlist, útvera, jóga, vefsmíði og hönnun
Meðmælendur

